BBQ kjúllaborgari slowcooker
Þessi er svo vandræðalega einfaldur að hann telst varla sem uppskrift. Eina sem þarf til er slowcooker, kjúllabringur og bbq sósa. Hægt er að skutla þessu í pottinn og leyfa réttinum að eldast á meðan farið er til vinnu en þá þarf að passa að stilla pottinn á low.
3-4 kjúklingabringur
1/2 flaska uppáhalds BBQ sósan (Sweet baby Ray)
Hamborgarabrauð
Hrásalat
Hluti sósunnar er settur í botninn á slowcooker pottinum, bringurnar lagðar ofaní og restinni af sósunni sett yfir. Stilla á Low og leyfa bringunum að eldast í 6-8 klst eða á high í 4-6 klst.
Veiða bringurnar upp úr pottinum, tæta í sundur með gaffli og setja aftur í BBQ sósuna í slowcooker pottinum. Leyfa kjúklingnum að vera í sósunni í 15-30 mín áður en borið er fram.
Þetta er borið fram á hamborgarabrauði eða tortilla vefjum með hrásalati og öðru grænmeti sem fólki finnst passa með borgaranum.
Athugasemdir
-
1/3/2024 2:25:07 PM
Soffía Ólafsdóttir
Ég var að fá Air Fryer pott og kann ekkert að elda í honum er að reyna að lesa mér til. Hvað er "slowcooker pottur" er það annarskonar afbrigðiaf Air Fryer? eða. Ein alveg úti á túni.
-
1/5/2024 5:45:52 PM
Erla Steinunn
Sæl Soffía og takk fyrir fyrirspunina :) Slow cooker er allt önnur eldhúsgræja og mjög frábrugðin Air fryer. Þegar fólk eldar í slow cooker er verið að hægelda við lágan hita í langan tíma. Algengt er að fólk eldi súpur og pottrétti sem sett er í pottinn að morgni og komi svo heim í tilbúinn mat 8-10 klukkustundum seinna. Air fryer er aftur á móti tæki sem notað er við steikingu á mat og tekur mun styttri tíma að elda en við hefðbundna ofnsteikingu.