GF hrökkbrauð

GF hrökkbrauð

Þessi uppskrift er glútenlaus en hægt er að skipta út kjúklingabaunahveitinu fyrir annað mjöl ef vill.

150 g fræjablanda (sólblómafræ, graskersfræ, sesamfræ og hörfræ)

50 g kjúklingabaunahveiti

1 msk birkifræ

2 tsk timjan

1 tsk maldon salt

1 egg

1 msk olía

Byrjið á að setja sólblóma-, grasker-, sesam- og hörfræ í matvinnsluvél. Vinnið fræin þannig að úr verði gróf mylsna. Setjið blönduna í skál ásamt kjúklingabaunahveiti, birkifræjum, salti og timjan. Hrærið vel saman og bætið siðan við olíu og eggi og hnoðið saman.

Einfaldast er að leggja örk af bökunarpappír bæði yfir og undir deigið og fletja það síðan út með kökukefli. Skerið kexkökur út t.d. með piparköuformi og færið með þunnum spaða yfir á bökunarpappírsklædda ofnplötu.

Bakið kexið í 13-15 mínútur við 180°c og látið síðan kólna áður en það er sett í loftþétt box.