Lion bar smákökur
100 g Lion bar
100 g suðusúkkulaði
180 g púðursykur
80 g smjörlíki
1 egg
160 g hveiti
1/4 tsk natron
1/2 tsk salt
1 tsk vanilludropar
Sykur, smjör, egg og vanilludropar þeytt saman.
Þurrefnum blandað við og söxuðu Lion bar súkkulaði bætt varlega við. Baka í 8 mín á 180°c og geyma í poka.
Athugasemdir
-
12/10/2019 7:37:20 PM
bjarki
gegjad