Skonsur

Skonsur
(1)

400 g hveiti

4 msk sykur

1 msk lyftiduft

1/2 tsk salt

2 egg

75 gr. brætt smjör

4,5- 5 dl mjólk

Blanda saman þurrefnum og bæta við eggjum og smjöri ásamt helming af mjólk, bæta við mjólk eftir þörfum.

Deigið á að vera frekar þykkt.

Baka á pönnu og snúa við þegar loftbólur fara að myndast á yfirborði kökunnar og kakan hefur tekið léttan gullinn lit.