Salatvefjur með satay sósu
400-500 g kjúklingur
1 tsk jarðhnetuolía eða ljós olía
1 lítill laukur
1 lítil paprika
1 lítil dós vatnakastaníur
Sósan:
3 msk hoi sin sósa
3 msk saltminni soja sósa
1 msk sesamolía
1 msk hnetusmjör
1 msk hrísgrjónaedik
1 msk hunang
1 tsk púðursykur
1/2 tsk hvítlauksduft
1/4 tsk endiferduft
Kál til að bera réttinn fram á
ristaðar jarðhnetur
Sneiddur vorlaukur
Byrjið á að skera kjúklinginn í smáa bita.
Í lítilli skál má blanda öllum innihaldsefnum fyrir sósuna og setjið til hliðar.
Skerið papriku í smáa bita og sneiðið vatnakastaníurnar í strimla á stærð við eldspýtur.
Hitið 1 tsk af olíu á pönnu og steikið kjúklinginn. Bætið við lauk og steikið áfram þar til laukurinn verður glær. Þá má bæta við vatnakastaníum og papriku. Steikið áfram í nokkrar mínútur og bætið síðan við sósunni. Hitið réttinn í 3-4 mínútur til að leyfa sósunni að þykkna.
Berið fram á kálblöðum með þunnt sneiddum vorlauk og myljið jarðhnetur yfir toppinn.